Að kaupa fasteign

Athuga kaupgetu þína og fjármögnunarleið

Kaup á fasteign er mikilvægasta fjárfestingin í lífi flestra. Það skiptir miklu máli fyrir fjárhaginn þinn að gera eins nákvæmt greiðslumat og mögulegt er...

Finna réttu staðsetninguna og drauma fasteignina

Margar leitarsíður finnast fyrir fasteignir og er það ágætis leið til að hefja leitina. Það sem færri vita er að sölumenn fasteigna taka einnig að sér leit fasteigna fyrir viðskiptavini...

Skoða eignina og gera kauptilboð til seljenda

Á kaupanda hvílir rík skoðunarskilda. Mikilvægt er því að skoða fasteignina ítarlega og jafnvel fá til þess fagmann. Næsta skref er svo að hafa samband við fasteignasala...

Kaup á fasteign er mikilvægasta og stærsta fjárfestingin í lífi flestra og í flestum tilvikum gerð með aðstoð lánastofnunar. Það skiptir miklu máli fyrir fjárhaginn að gera eins nákvæmt greiðslumat og mögulegt er sem tekur tillit til stöðunnar í dag og á morgun. 

Fyrir fjárhaginn skiptir meginmáli að þú ráðir vel við rekstrarkostnað fasteignarinnar ásamt mögulegum afborgunum láns á næstu árum og jafnvel áratugum.  Þú getur leitað til viðskiptabankans þíns, lífeyrissjóðs eða annarrar lána­stofnunar til þess að fá bráðabirgðagreiðslumat sem mun gefa þér nokkuð skýra mynd um kaupgetu þína.

Bráðabirgðagreiðslumatið byggir á upplýsingum um tekjur þínar, framfærslu og rekstrarkostnað heimilisins, til að mynda kostnað vegna bifreiða o.s.frv.

Í flestum tilvikum er hægt að gera bráðarbirgðargreiðslumat nafnlaust á heimasíðum lánastofnana án nokkurs kostnaðs eða skuldbindinga. Á grundvelli þessara upplýsinga getur þú áttað þig á hversu dýra eign þú getur skoðað

Á vef banka og fleiri lánastofnana er að finna reiknivélar þar sem þú getur fengið nokkra hugmynd um hvað þú ræður við taka hátt lán miðað við gefnar forsendur. Hjá bönkum og öðrum lánveitendum gilda mismunandi reglur um lánsfjárhæðir, sem hægt er að kynna sér á heimasíðum þeirra. Fyrstu kaupendur fá venjulega lánað fyrir allt að  85% af markaðs­virði íbúðar ef greiðslumat sýnir fram á að lántakandi ráði við afborganir af slíku láni. Kaupendur sem hafa huga á að stækka við sig og fjárfesta í dýrari fasteign geta venjulega fengið allt að 80% af markaðsverði íbúðar ef greiðslumat leyfir. 

Ekki er óalgengt að kaupendur og þá sérstaklega fyrstu kaupendur taki neyslulán til skams tíma til þess að fjármagna innborgun en mjög mikilvægt er að slíkt komi fram á greiðslumati.

Lánastofnanir bjóða mismunandi lánakjör og lánaform og er því mikilvægt að gera samanburð og jafnvel ræða við fjármálaráðgjafa áður en farið er af stað. Líta þarf á vaxtakjör, lántökukostnað, uppgreiðslugjald o.s.frv. Einnig þarf að meta hvort það henti að taka óverðtryggt eða verðtryggt. 

Þegar þú hefur hugmynd um hversu dýra fasteign þú getur eða vilt fjárfesta í er tímabært að hefja leitina. Það getur þú gert með hjálp leitarvéla á internetinu eða með aðstoð fasteignasala, venjulega þér að kostnaðarlausu. 

Í flestum tilvikum eru leitarskilyrðin eftirfarandi: 

  • Staðsetning
  • Stærð
  • Fjöldi herbergja
  • Tegund
  • Samgönguæðar
Þegar þú hefur fundið spennandi eign sem uppfyllir kröfur þínar er næsta skref að hafa samband við seljanda þeirrar eignar og biðja um söluyfirlit. Söluyfirlitið gefur venjulega upp nákvæmari upplýsingar um ástand fasteignarinnar ásamt rekstrarkostnaði (tryggingar, húsfélagsgjöld, fasteignargjöld o.s.frv). Í söluyfirliti kemur einnig fram hvaða lán hvíla á eigninni, upplýsingar um eigendur og hvenær hún er laus til afhendingar. 
Ef upplýsingar söluyfirlits standast væntingar  er næsta skref að mæta á opið hús eða bóka einkaskoðun. 

Ef þú hefur huga á að gera tilboð í fasteignina er næsta skref að hafa samband við sölumann fasteignarinnar. Hafa skal í huga að á kaupanda hvílir rík skoðunarskilda. Mikilvægt er því að skoða fasteignina ítarlega og fá til þess jafnvel fagmann.

Spurðu seljandan eins ítarlegra spurninga og hugsast getur um ástand eignarinnar, fyrirkomulag og fyrirhugaðar framkvæmdir. Ef fasteignin er í lélegu ástandi er ágætt að panta ástandsskoðun. Ástandsskoðun getur gefið upp nákvæma verk- og kostnaðaráætlun fyrir fasteignina sem gott er að hafa til hliðsjónar þegar tilboðsverð er ákveðið.

Við ástandsskoðun er gott að veita eftirfarandi eftirtekt:

  • Rakastig og merki up rakaskemmdir. Kíkja upp á háaloft og á bakvið lausar innréttingar
  • Ástand glugga og glerjun með tilliti til vatns og hljóðeinangrunar
  • Staðan á ofnum og píplögnum. Skrúfa frá krönum.
  • Fráveitu og skólplagnir. Fylgstu með rennsli í niðurföll. Prófaðu að sturta niður í klósettskál
  • Ástand drenlagna utanhúss
  • Staðan á innréttingum. Prófaðu að opna og loka skáphurðum og skúffum

Kaup á fasteign eru venjulega sambland af praktísku og tilfinningalegum eðli. Af þeim sökum getur verið mikilvægt getur verið að hafa óháðan aðila með sér og spyrja sig hversu mikið gæti ég selt þessa fasteign á m0rgun ef ég þyrfti óvænt að losna við hana?