Að selja fasteign
Gera verðmat og undirbúa sölu
Áður en farið er af stað með sölu fasteignar er mjög mikilvægt að átta sig á því hvernig markaðurinn liggur og hversu mikils virði fasteignin þín er...
Undirbúa fasteignina fyrir söluferlið
Góður undirbúningur gerir allt söluferlið mun einfaldara. Hann getur jafnvel leitt til hraðari sölu og hærra söluverðs. Hér að neðan eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga...
Sala fasteignar og afhending
Þegar endanlegur kaupsamningur liggur fyrir hefst undirbúningur fyrir afhendingu og uppgjör. Mikilvægt er að ganga frá öllum lausum endum...
- Gera verðmat og undirbúa sölu
Áður en farið er af stað með sölu fasteignar er mjög mikilvægt að átta sig á því hvernig markaðurinn liggur og hversu mikils virði fasteignin er. Fyrsta skref er að kanna sölu- og leitarsíður á internetinu og athuga hvernig sambærilegar eignir eru verðlagðar og á vef þjóðskrár er hægt að finna tölfræði sem byggir á raunverulegum sölusamningum. Einnig er hægt að gera bráðarbirgðar verðmat hér. Hafa skal í huga að endanlegt verð er samningsatriði á milli kaupanda og seljanda og getur því orðið hærra eða lægra. Hægt er að nálgast opinber gögn, eins og t.d hjá sýslumanni, sem sýna raunfermetraverð.
Ekkert mælir gegn því að eigandi sjái sjálfur alfarið um verðlagningu og sölu sinnar fasteignar en mun þægilegra er fá fagaðila til þess. Flestir seljendur fasteigna fara þá leið. Löggiltir fasteignasalar eru einu utanaðkomandi aðilar sem hafa leyfi til þess að verðleggja og selja fasteignir annarra og starfa venjulega á fasteignasölum. Söluþóknun sem fasteignasalar taka er mjög breytileg og getur farið frá 1 og upp í 3 prósent af söluverði. Í sumum tilvikum taka fasteignasalar fast verð. Ekki er útilokað að taka samningsviðræður við fasteignasala um söluþóknun. Til dæmis mætti reyna að fá fast verð og gefa svo prósentu ofan á ákveðið umframverð sem mögulega fæst fyrir fasteignina. Söluþóknunin dekkar í flestum tilvikum allan kostnað eins og myndatöku, skjalavinnslu og vinnuframlag sölumanns fyrir utan opinber gjöld.
Gott er að kynna sér reglur ríkisskattstjóra til þess að athuga hvort það hvíli skattskylda á mögulegum söluhagnaði.
- Undirbúa fasteignina fyrir söluferlið
Góður undirbúningur gerir allt söluferlið mun einfaldara og getur jafnvel leitt til hraðari sölu og hærra söluverðs. Hér að neðan eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.
Undirbúningur fyrir myndatöku og opið hús
Mikilvægt er að leggja metnað í undirbúning fyrir myndatöku og opið hús. Fasteignina þarf að undirbúa fyrir myndatöku og opið hús. Öll rými, innan sem utan, sem tilheyra fasteigninni þurfa að vera snyrtileg og stílhrein. Einnig er mikilvægt að ganga frá lausum endum og lagfæra bilaða hluti.
Samantekt upplýsinga
Þeim mun meiri upplýsingar sem þú getur veitt þeim mun betra. Það mun gefa væntanlegum kaupanda meiri öryggistilfnningu ef sem mestar upplýsingar liggja fyrir. Skilda er að fá yfirlýsingu frá húsfélagi undirritaða af formanni og gjaldkera. Einnig er gott að safna saman í möppu leiðbeiningum og lista yfir þær framkvæmdir sem farið hefur verið í ásamt nótum.
- Sala fasteignar og afhending
Þegar endanlegur kaupsamningur liggur fyrir hefst undirbúningur fyrir afhendingu og uppgjör.
Mikilvægt er að ganga frá öllum lausum endum áður en fasteignin er afhent nýjum eiganda. Ganga þarf úr skugga um það að fasteignasali og nýjir eigendur hafi allar mikilvægar upplýsingar um eignina.